Chilli Pro Scooter Zero V2 - Polished

114-6

CHILLI PRO SCOOTER ZERO V2

Rétt eins og forveri sinn Zero hlaupahjólið fellur Zero V2 í flokkinn „Riders Choice Chapter“ sem inniheldur dýrari hjólin hjá Chilli.

Zero V2 var sérstaklega hannað fyrir þá sem hafa þegar náð góðum tökum á undirstöðuatriðunum og hafa háan standard. Þetta fislétta hjól úr áli hefur stóra t-stöng og breiða plötu – sem er fullkomið til að fara létt með að grinda og gera svakaleg trikk. Zero V2 hjólið er líka með netta tveggja bolta klemmu og hálfgegnsæ hjól með holri miðju.

  • Notendur: Lengra komnir
  • Hjól: 120 mm
  • Hæð: 85 cm
  • Hæð frá efri brún plötu að t-stönginni: 76 cm
  • Legur: ABEC9
  • Plata: 52 x 12,5 cm úr áli